Gleðilegt ár

Já góðan daginn. 

Af mér er það að frétta að ég er byrjuð í fjarnámi í Borgarholtsskóla í framhaldi í stuðngingsfulltrúanámi. Fjarnám er algjörlega nýr heimur fyrir mér, enda voru smá byrjunarörðuleikar ;)

Ég er farin að stíga út fyrir þægindahringinn og finn ég hversu heft ég hef verið, ég finn fyrir frelsi og liggur við að ég sé óstöðvandi ;) 

Ég man ekki hvort ég hef sagt ykkur að ég kynntist manni í apríl á síðasta ári, alveg dásamlegur maður og gengur það ljómandi vel, við erum frjáls þótt við séum í sambandi, enda ríkir mikið traust og svo erum við líka svo miklir vinir. Við erum í fjarbúð. 

Ég læt þetta duga að sinni. Eigið góðan dag elskurnar Heart 


Yndisleiki

Langar að deila með ykkur að ég er yndislega dásamlega hamingjusöm kona.

útskrift

Þá eru allar einkunnir komnar í hús og er ég alsæl með þær allar, ekki annað hægt, svo var kaffi og meðí á eftir, svkalega flott og falleg athöfn.  Svo var dagurinn fallegur í alla staði, gott veður. Svo er kærastinn alveg að fara renna í hlað. Ekki annað hægt en að vera hamingjusöm og sátt Heart InLove

Einkunnir og gleði

Fór í skólann í morgun að sjá prófin mín Smile, og kom snilldar vel undan þeim Smile. Ég er himin lifandi yfir þeim.

Okkur turtildúfunum gengur rosalega vel, við erum mjög ástfangin og hamingjusöm Heart


Haminga

Skólinn er búinn hjá mér, mér gékk þokkalega vel í prófunum nema kannski síst félagsfræðinni, en það kemur í ljós þegar ég sé einkunirnar. Skólaslitin verða 18 mai. Á þá eina önn eftir og við tekur nuddnámið, það er allavega á dagskránni, en það hefur svo margt gerst sl mánuð að ég vil ekki staðfesta neitt. Kannski verð ég flutt úr bænum, á sveitaheimili með hænur og orðin hænsnabóndi. Svo hitti ég mann 9 apríl í Perlunni á mannmörgum stað ( eins og spákonan mín sagði ) og við erum afskaplega hamingjusöm og ástfangin. Þetta er fyrsta helgin sem við hittumst ekki, hann er að vinna alla helgina, upptökur í dag og spila á balli í kvöld svo aftur upptökur á morgun. Hann er semsagt hljómlistarmaður. Gefur út diska, semur lög og texta og syngur einnig.

Ég fer til Danmerkur 20 júní til dóttir minnar og tengdasonar, ætla að vera hjá henni þegar hún á litla krílið, hún er sett 24 júní, hlakka alveg svakalega mikið til, Þetta er hennar fyrsta barn. Kem heim aftur 7 júlí og þá sé ég hitt nýja ömmubarnið mitt, sem sonur minn og tengdadóttir verða búin að eiga, en þau koma með sitt annað barn. Þá verða barnabörnin mín orðin 4. Hlakka ógó mikið til. Ég er svo rík. 

Svo tekur við ferðalög og útilegur með mínum heittelskaða og syni. Fylgi honum á böllin í sumar líka þar sem hann verður að spila.  

 


Frábær helgi að baki

Frábær helgi að baki, afmælisdagurinn á föstudaginn Wizard og fékk ég góða vini í heimsókn, laugardaginn fór ég á deit á tónleikum í Perlunni og bara smullum saman Heart . Framhaldið verður svo bara að ráðast með tíð og tíma, það tekið á rólegu nótunum. Sunnudagurinn tekinn með afslöppun og rólegheitum enda ekki hundi út sigandi. Ansi hvasst í dag. Svo hefst ný skólagöngu vika, síðasta vika fyrir páska, hlakka til að fá smá frí, skólaslitin svo 10 mai hjá mér InLove

Fermingamyndirnar

Mikið var ég glöð þegar ég skoðaði myndaalbúmið mitt herna á blogginu Heart, fermingarmyndirnar af syni mínum á ég hér, ég helt að ég væri búin að glata þeim því harði diskurinn hrundi í tölvunni og þær voru þar inná. Hafði ekki efni á að taka þær af enda var ég ekki spurð, en fékk bilaða diskinn með svo ég get tekið allar myndir útaf þegar ég nenni.  Smile

Kveðja Guðrún

 


Rútína

Vá bara kominn apríl og ég sem ætlaði að vera duglegri að blogga. Ég elti rútínuna sem er að vakna kl 7 á morgnana virka daga, fer í skólann til kl 14, heim að læra, hafa til kvöldmat, smá slökun og sofa. Mér gengur svakalega vel í skólanum, brillera bara miða við 33 ára skólabekkjasetu.

Vorið komið, snjórinn farinn, fuglalíf lifnað við ásamt gróðri, skordýrum og  ógleymdri MÉR Smile.

Mikið hlakkar mig til að komast á ferðina í sumar í mínum krúttlega tjaldvagni, já og eða fara til Norge í smá vinnu. En til Köben ætla ég að fara og vera við fæðingu hjá dóttir minni í júní Heart

 Læt staðar numið að sinni.

Kveðjur til ykkar elskur Heart


Nýtt ár

Komið þið sæl sem eruð hér enn. Fésbókin hefur algerlega yfirtekið völdin,en ætla nú að reyna að breyta því eitthvað. Já vel á minst , gleðilegt ár þótt feb sé að verða hálfnaður. Það hefur mikið á mína daga drifið frá því síðast, bloggaði síðast 24 jan ´10. 2 febrúar 2010 hitti ég mann og varð yfir mig ástfangin. Við trúlofuðum okkur 6 mai 2010 á afmælisdegi hans. Við fórum í útilegu en bara eina, svo fór ég ein með syni mínum í 2 útilegur. Í júlí hjálpaði þessi maður mér að laga íbúðina mína í breiðholtinu því ég leigði hana út frá 1 ágúst. Við sonurinn fluttum til kærastans míns og ætluðum að vera þar þangað til ég fengi íbúðina sem ég tók mér á leigu. Vorum þar í viku því þá sprakk allt, þeir einfaldlega þoldu ekki hvorn annan, báðir vildu hafa mig útaf fyrir sig. Fór til vinkonu minnar og var með henni í bústað yfir helgi, fór svo til annarar vinkonu minnar sem á heima í sömu götu og ég bý í núna. Fékk glænýja íbúð. Sambandið við kærastann gekk á ýmsu og vorum við að hætta og byrja hætta og byrja alveg pain samband og tók á sko. Sonurinn fór í skóla í Hafnarfirði , já gleymdi náttlega að segja að ég flutti í Hafnarfjörðinn . Allt fór að ganga miklu betur í skólanum, og loksins fór hann að mæta í skóla. Núna er hann komin með smá vinnu með skólanum. En við kærastinn vorum búin að slíta trúlofuninni í nóvember 2010, og sambandinu endanlega í janúar 2011. Entist í rétt rúma 11 mánuði. Já ég fór líka og settist á skólabekk aftur eftir 32 ára hlé á námi. Ég er í Hrinsjá, endurmenntunar og endurhæfingar skóli. Hringsjá er rekinn af Tryggingastofnun og öryrkjabandalaginu. Þannig að það er heilmikið búið að gerast í mínu lífi á einu ári. Byrjaði í Zúmba 7 febrúar og það er púl dans , fæ alveg að svitna sko. En ferlega mikið gaman. Ég á líka litla tjúa prinsessu sem heitir Tara, alveg minsta gerð að tjúa. Sonurinn var að fá sér hvolp sem er blanda Sheffer/bordicolli/colli og er alveg æðislegur karakter. Búin að fara á eitt þorrablót, og jeminn eini hvað maturinn var góður. Held að ég stoppi hér við að sinni. Kveðja Guðrún Krútt.

mentun og skóli

Gleðilegt ár, janúar að verða búinn og þá styttist verulega í vorið og sumarið. Mér finst janúar búinn að vera soldið langur, eins og hann ætli aldrei að taka enda.

Það er svosem ekkert nýtt hjá mér nema nú á ég kærasta dökkhærðan og bara soldið sætann Heart

Ég er byrjuð á námsekiði í sjálfsstyrkingu og það er mjög gaman, allt í leikrænu formi, leikir og bara gaman. Hún er að kenna okkur að vera kjánaleg og bjánaleg og gera mistök Smile og það sé allt í lagi að vera þannig þegar þannig stendur á Smile og það er allt í lagi að gera mistök þvi við erum ekki fullkomin. Við erum  í leiðinni að læra að vera aftur barnið í sjálfum sér rifja það soldið upp Smile.  Svo leikfimi sem er líka æðislegt.  Ég er í rauninni að gera alveg helling þannig sé. Stefna er tekin á skóla í ágúst að læra bókhald, fer á námskeið í því núna í endann feb eða byrjun mars. Er að vinna líka í þvi að hvernig ég fer að framfleita heimilinu því ég hætti væntanlega að vinna þegar skólinn byrar nema ég fái vinnu eftir kl 2 á daginn. Smile 

Þetta er það sona helsta sem ég get sagt ykkur núna.  Ég er eiginlega dottin úr bloggæfingunni Smile 

Eigið góðan dag elskurnar InLove 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband