ástarmál og fl ;)

Er nýkomin inn frá því að bera út moggann, rétt slapp á undan rokinu,. Líður svo vel að rölta snemma á morgnana ein með sálfri mér. Happy

Í gærkvöldi tæmdi ég eldhhúsið og stofuna, setti allt uppá yfirbyggðu svalirnar og skúraði og bónaði, þarf að fara aðra umferð og geri það á eftir þegar ég kem heim frá að keyra soninn í fótboltakeppni. Setja  ljós í gluggana, ætla hafa blá ljós í litlu stofugluggunum, finst þau svo rómó og róandi. Smile hef samt rauð í mínum glugga í herberginu. 

Hef lítið sofið undanfarna viku útaf áhyggjum Frown,  ekki peningum, það er annað og meira dýrmætara Heart en peningar til,. Í vinnunni í dag var ég alveg annars hugar og fanst mér ég ekkert gagn gera, en fékk samt þvílíkt hrós fyrir hvað ég er lagin með krakkana og hvað ég sé lagin að fá þau til að byrja læra, og uðvitað varð ég mjög þakklát og ánægð Happy, hvað er annað betra til en að fá hrós og klapp á bakið fyrir það sem maður er að gera vel, já og jafnvel knús, mér finst það voða notó. Krakkarnir fá verðlaun fyrir vel unnin störf í skólanum og að vera dugleg, ég fæ líka verðlaun fyrir vel unnin störf  Smile

Ekki verður meira af ástarsambandinu, var ekki eins og ég hélt  það væri, en það var ekki hægt að túlka skilaboð hans á annan hátt en um samband væri að ræða. Hann notaði mína hrifningu til að fá sitt, blístraði á mig ( eins og húsbóndi við hund sinn ) þegar hentaði honum og ég hljóp af stað, en svo kom upp sú staða að ég ákvað að prufa gæjann og hlýddi ekki blístrinu, allt í lagi í eitt skipti, en þegar ég hlýddi ekki í annað sinn þá fékk ég bæbæ, ekki  meira sex og ekki senda mér sms. Ég sagði bara OK.  Þá vissi ég það,, HANS TAP . Áhyggjurnar voru ekki út af honum Wink

Ég er ekki að byðja um vorkun, ég er ekki í ásrtarsorg, ég er ekki bytur, ég er ekki lögst í þunglyndi, hann einfaldlega sá mig ekki.  

Eigið góðan dag elskurnar , það ætla ég að gera og njóta þess að þrífa gólfin þau sem eftir eru. Wink og njóta svo kvöldsins Heart

  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Jahérna, en þú dugleg.  Dáist að því.

Hvað varðar gæjann þá var hann greinilega bara ekki nógu góður fyrir þig... 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 15.11.2008 kl. 08:05

2 Smámynd: Líney

Knús  mín  kæra  og megir þú eiga  góðan dag

Líney, 15.11.2008 kl. 10:14

3 identicon

HANS TAP - Hann átti þig bara ekkert skilið!!!

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 10:46

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú ert skynsöm kona

Sigrún Jónsdóttir, 15.11.2008 kl. 11:42

5 Smámynd: Aprílrós

Takk Hildur Helga - Líney - Ásdís Emilía - Sigrún ;)

Held áfram á vit nýrra ævintýra ;)

Njótið dagsing og helgarinna ;)

Aprílrós, 15.11.2008 kl. 13:44

6 Smámynd: Sigríður Svala Hjaltadóttir

Þú ert greinilega bara einfaldlega miklu meiri manneskja en þessi gæi. Þú ert frábær og auðvitað áttu að fá að heyra það mín kæra. knús knús til þín

Sigríður Svala Hjaltadóttir, 17.11.2008 kl. 11:37

7 Smámynd: Aprílrós

Takk Sigríður Svala ;) ;)

Aprílrós, 17.11.2008 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband