Færsluflokkur: Bílar og akstur

Gleðilegt ár

Ég skellti mér í Sandgerði í gær að heimsækja eina bloggvinkonu mína , var það mjög svo notalegt að koma til hennar, svo mikil værð þrátt fyrir fullt hús af börnum. Byrjaði reyndar á því að leita að henni í Garðinum, minnti að hún ætti heima þar, en þegar ég fann ekki götuheitið þar þá á endanum hringdi ég í hana og var að útskýra hvar ég væri, hún kannaðist ekki við neitt og spurði mig hvort ég væri ekki örgglega í Sandgerði ? svo ég hætti að leita og brunaði yfir.

  Á heimlið kom ég við í Keflavíkinni hjá fyrrum nágrönnum og var það notalegt, svo langt síðan ég hef séð þau.,sjá nýja húsið, bara flott. Allt svo vítt og nægt rými.Og að sjálfsögðu var ég yfirheyrð um hvernig gengi heima í húsinu, ástarmálin mín, börnin mín, og bara allt mögulegt.  Þau hjón þykjast vita um mann fyrir mig, og komu þau okkur á blind date sem verður á sunnudaginn kemur, ullala Heart og hann er dökkhærur og keyrir taxa, meira veit ég sosem ekkert um hann nema það sem þau segja, mjög svo góður kall. 

Já gleraugun frægu þessi tvískiptu, fór í gleraugnaverslunina í gær eina ferðina enn til að láta þau vita að þau eru bara als ekki eins glerin, annað er stærra, og já áberandi stærra, enda fasnt mér alltaf þau vera skökk á mér,, já ekki bar á öðru en að umgjörðin væri þræl gölluð svo ég þurfti að byrja uppá nýtt að velja nýja umgjörð og fór dágóður tími í það. Vona að þetta fari nú að ganga þetta gleraugnamál mitt. 

 Ég óska öllum gleðilegs árs kærleiks og friðar Heart  InLove


Tjakkurinn

Ég sagði frá því um daginn að það hafi sprungið á dekki á bílnum mínum, allt í lagi með það sosem en alveg hund ömurlegt. Ég og vinur minn ( annar en sá sem staddur er hjá mér ) fórum og redduðum þvi, hann tjakkaði upp bilinn, tók sprungna dekkið undan og setti varadekkið en það bara tókst ekki að setja það á, vegna þess að bíllinn tjakkaðist ekki nógu hátt. Nú ég sagði honum að setja sprungna dekkið undir aftur og tjakka bílinn niður. Fundum kubb og byrjuðum á ny, og nú gekk þetta. Ég fór í bíla umboðið í gær og sagði að þessi tjakkur væri alltof lítill fyrir þennan bíl ( RAV4 )og í þokkabót tjakkurinn bognaði og brotnaði. Og afþvi ég er kona þá var tjakkurinn skoðaður og maðurinn prufaði að tjakka bílinn upp með bogna og brotna tjakknum og viti menn boddy-ið lyftist en dekkið bifaðist ekki frá jörðu. Þá segir hann : þessi tjakkur er of lítill fyrir þennan bil og yfirleitt fyrir jepplingana, já sagði ég, ég var nú búin að nefna þetta við þá en mér ekki trúað. Hann fór með tjakkinn inn og sýndi þeim hann og sagði að þessi tjakkur lyftir ekki svona bílum nógu hátt. Alveg sama, þessir tjakkar eru orginal fyrir fyrir þessa bila, segðu henn bara að nota kubb undir. Ég svaraði HALLÓ !!! ÉG Á EKKI AÐ ÞURFA AÐ NOTA KUBB UNDIR TJAKKINN, OG ÞESSI TJAKKUR ER OF LÍTILL OG ÞAÐ VAR STARFSMAÐUR SEM LÉT REYNA Á ÞAÐ HÉRNA FYRIR UTAN, OG ÞVÍ LÁTIÐ ÞIÐ ÞÁ EKKI KUBB FYLGJA MEÐ BÍLUNUM LÍKA SVO HÆGT SÉ AÐ SKIPTA UM DEKK ?Ég sagði sölumanninum að ég hafi þakkað mínu sæla að hafa ekki verið úti á landi einhversstaðar á keyrslu því ég var ekki með kubb meðferðis. sölumanninum fanst nú þessi spurning ekki svara verð því ég fékk ekkert svar. En semsagt fæ nýjann tjakk eftir 2-3 daga því þessi varð ónýtur og það í fyrstu notkun, og næst þegar ég þarf að skipta um dekk þá mun nýji tjakkurinn skekkjast og brotna líka. 

Sölumaðurinn í sínum jakkafötum veit sennilega ekki að eftir því sem bílarnir stækka þá þyngjast þeir og þ.a.l þarf stærri tjakka.  Smile

En ég er komin með alveg splúnkunýtt dekk og varadekkið komið á sinn stað aftur. Smile 


Sprúngt

Angry  á bílnum mínum og bíllinn stendur á N1 við umferðarmiðstöðina. Ég gat ekki skipt um dekk Devil   og það fór mjög illa í mig að geta það ekki . Erfitt að sætta sig við það en verð nú bara samt Crying .  Hefði nú alveg bjargað mér ef ég væri á fólksbíl en ég er á jeppling núna. Ég skipti um dekk með leikandi léttu áður fyr. Er bara orðinn ræfilsleg í kroppnum Frown .  Bið vin minn að hjálpa mér í dag að skipta um dekk.  Ég þoli ekki  svona vesen.  Hafið góðan dag, það ætla ég að gera þegar ég er búin að koma bílnum heim Smile  Wink   

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband