HANN

Bergur minn og Bozena koma heim í dag, þau voru í Pollandi yfir jól og áramót, Bergur bað mig að hafa lambakjöt, brúnaðar kartöflur og sósu , hann væri farinn að þrá Íslenkst lambakjöt.  Svo steikin er komin í ofninum á lágum hita og kartöflurnar verða brúnaðar þegar heim er komið í dag.  Hlakka mjög mikið til að sjá þau aftur InLove, liggur við að maður hafi fengið fráhvarfseinkenni af fjarveru þeirra. 

Ingólfur er drullu slappur af kvefinu sem hann nældi sér í á nýársnótt og hef haldið honum heima í gær og dag Sick.  

Fundastand byrjað aftur hér og þar útaf hans skólamáli sem ég er að berjast við og hætti ekki fyr en ég hef þetta í gegn.   Honum leiðist Pouty þessir fundir því hann þarf að koma með mér á suma því hann þarf líka að tjá sig .  

Vinna byrjuð aftur hjá mér en vegna líkamsþjáninga þá hef ég ekki getað farið en ætla reyna að fara á morgun, má varla vera að þvi annars að vinna þvi það er svo mikið að gera í fundarhöldum Grin , læknum og rannskóknum , en allt þetta kemur að lokum og rútína í fastar skorður fram að páskafríi.  

Framundan hja´mér er undirbúningur fyrir fermingu Ingólfs, byrjaði í haust að sanka að mér svo ég þyrfti ekki að gera það allt á sama tíma. Búin með sumt.

En annars er bara allt í góðum gír, og ætla ég að halda áfram í þeim gír InLove 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Æi það verður frábært þegar þau koma heim, verða ekki svona litlu jól hjá ykkur ??

Linda litla, 7.1.2009 kl. 14:15

2 Smámynd: Aprílrós

jú Linda það verða einmitt litlu jól á eftir þegar þau koma. ;) Hlakka ekkert smá lítið til sko ;)

Aprílrós, 7.1.2009 kl. 15:39

3 Smámynd: Líney

Njóttu þess

Ég er ekki farin að hugsa um fermingu míns  sonar ennþá,meira  letiblóðið ég...

Líney, 7.1.2009 kl. 19:11

4 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góða skemmtun með þínum yfir góðum mat

Guðrún Þorleifs, 7.1.2009 kl. 20:53

5 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Já lambakjötið er alltaf best..

Hafðu það gott með þínum börnum. Það er svo yndislegt að fá þau heim þessi blessuð börn...sama hversu stór/gömul þau eru...

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 8.1.2009 kl. 00:01

6 Smámynd: Sigrún Óskars

gangi þér vel í "fundarstandinu" ég hef trú að því að þú náir þínu fram

Sigrún Óskars, 8.1.2009 kl. 17:22

7 Smámynd: Aprílrós

Hætti sko ekki fyr en ég næ mínu fram, er ekki þekt fyrir að gefast upp ;)

Aprílrós, 9.1.2009 kl. 07:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband