Tilfærslur á dóti og dóttir minni.

Já ekki var fjarveran lengi hehe , en mátti til með að segja ykkur að ljósin eru komin í gluggana og tekur sig vel út, langar að setja aðeins meiri ljós en sé til.  Heart

Svo um mánaðarmótin flytur dóttlan aftur heim og talaði hún um að vera alest 3-4 mánuði og þarf ég að færa hillur og dót á milli herbergja svo hún geti haft sitt rúm og dót í herberginu já og tæma skápinn sem yfirfullur er af hinu og þessu sem ég hugsa að megi alveg fara lengra en í næsta skáp. Svo þarf að búa til pláss fyrr sófann hennar og kistuna sem langafi hennar átti og afi hennar endursmíðaði og gaf henni.  Heldur mikið upp á þá kistu. Heart

Þetta hefur aldrei klikkað hjá mér að þegar ég er búin að koma öllu í stand hjá mér,  þá kemur einhver inná mig, klikkar ekki. Heart Ég myndi alveg þyggja ástmann til mín InLove 

Augnlæknir í fyrramálið svo það er eins gott að fara koma sér í háttinn Sleeping 

Hafið það eins best og þið getið, reynið að láta ástand þjóðarinnar  ekki taka völdin af ykkur, látum þetta ástand frekar þjappa okkur saman, vera góð við hvort annað, elskum hvert annað.  Heart

Knúsarkveðjur til allra bloggvina minna og allra aðra líka. Heart

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þekki þetta, -  þegar maður er búina að koma öllu í stand þá gerist alltaf e-hvað. - svo maður þarf að endurraða. Kærar kveðjur

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 23.11.2008 kl. 23:08

2 Smámynd: Líney

knús

Líney, 23.11.2008 kl. 23:55

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

knús á þig

Sigrún Jónsdóttir, 24.11.2008 kl. 00:12

4 Smámynd: Sigríður Svala Hjaltadóttir

já það þarf alltaf að breyta og færa þegar einhver kemur inn á mann, en mér finnst samt frábært að hún hafi þann möguleika á að flytja aftur inn á Hótel mömmu, ég er búin að vera frekar lengi inn á minni móður, en það eru ekki allir jafn heppnir og ég og dóttir þín

Ég er sannfærð um að ástmaður-inn sem þú býður eftir komi á allveg hárréttu augnabliki. Það er bara verst að maður veit aldrei hvenar hárrétt augnablik-ið er.

Sigríður Svala Hjaltadóttir, 24.11.2008 kl. 03:53

5 Smámynd: Aprílrós

Já nkl gerir hann það örugglega og sammála veit ekki hvenær augnablikið er . Knús og klemm til þín Sigríður mín.

Knús og meira knús og endalaust knús til -ykkar allra,

Aprílrós, 24.11.2008 kl. 12:43

6 Smámynd: Linda litla

Það verður gott að fá hana heim aftur, vittu til. Dóttir mín er hjá mér ca. 3-4 sólarhringa á viku með ömmustrákinn, held að það væri annars nokkuð tómlegt ef að þau kæmu ekki svona oft.

Þetta með ástmanninn....... hann kemur þegar þú ert tilbúin. Ég trúi því alola vega.

Linda litla, 24.11.2008 kl. 15:25

7 Smámynd: Aprílrós

Takk Linda mín , já veistu að mér hlakkar til að fá hana heim, léttir líka á mér áhyggjum af henni að hafa hana heima. Já og hefði líka verið gott að hafa stuðning sér við hlið en það þíðir ekki að gráta það sem ekki er til staðar, ég hef stuðning ykkar bloggvina minna og það gefur mér svo miklu miklu meira en ykkur getur grunað.  Ég veit hverjir og hvar vinir mínir eru þegar á reynir.

Eigðu ljúft kvöld Linda mín, það var æðislegt að hitta kormák í bíó á laugardaginn var, var ég kannski búin að segja þér það áður ? er svo svakalega hrikalega gleymin að hálfa væri fullt.

Aprílrós, 24.11.2008 kl. 21:43

8 Smámynd: Erna

Hæ Krútta mín! Ég er einmitt að klóra mér í kollinum þessa daga og hugsa um hvað ég geti gert við fj......draslið sem ég er búinn að koma fyrir í skápnum í herbergi dóttur minnar  En hún er að koma heim í desember og verður eitthvað hér heima. Ég verð kannski bara að byggja við kofan til þess að koma þessu drasli fyrir  En það verður yndislegt að fá hana heim, hún er sko alltaf velkomin á hótel mömmu  Gangi þér vel hjá augnlækninum í dag,,,,Knús og kram Krútta mín

Erna, 25.11.2008 kl. 11:34

9 Smámynd: Aprílrós

Humm Erna mín ég fór í gærmorgun til augnl og nýju gleraugun eru ekki að virka eins og þau eiga að gera., það á að reyna stilla glerin eitthvað og svo samþykkti ég ekki les-styrkinn núna sem hann skrifaði uppá um daginn. Hann sagði : ég verð að leggja höfuðið í bleyti hvernig í fjandanum hann geti lagað þetta hehe. Sagði að það væri erfitt að gera mer til hæfis, SURPRISE !!!

Aprílrós, 25.11.2008 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband