Jólin sett upp

Smá frá mér hérna.Það er búið að vera mikið að gera hjá mér,vinna, útrétta og hitt og þetta. Er að koma jólunum upp hjá mérSmile, hvíta jóltréð skartar sínu fegursta kviknakið Grin, hef ekki fengið bláu ljósin á það eins og eg vil , virðast vera alsstaðar búin bara. Svo það endar sennilega með rauð eða græn ljós. Já uðvitað skelli ég mynd inn þegar ég hef gefið þvi ljós og skraut.Heart

Vinn út næstu viku og þá er komið jólafrí hjá mér til 5 jan, hlakka ekkert smá til sko, verður kærkomið frí.Joyful

Ég lét gott af mér leiða í dag,Heart ákvað gefa jólaljós til einnar einstæðra móður sem á lítið af jóladóti og hefur ekki mikla peninga milli handa, ekki það að ég hafi alveg böns af pening milli minna handa heldur, en jólaljós eru róandi og gefa fallega byrtu.Heart

Sonurinn gistir hjá systur sinni þessa helgina og eru þau að baka og hafa gaman af og njóta þess að vera saman.  

Góða fólk , ætla halda áfram að setja upp jólin..Heart

ÞIð sem kommentið hjá mér þakak ég ykkur fyrir, þið eruð alveg yndisleg og kommentin ykkar gefa mér svo mikið.Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yndislegt af þér að gefa þessari ungu konu jólaljós, birtan hefur örugglega snert hjarta hennar, fallegur hugur að baki hjá þér.

Hafðu það gott, kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 23:30

2 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Sendi þér mína bestu bjartsýniskveðju

Lói

Eyjólfur Sturlaugsson, 13.12.2008 kl. 23:42

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það verður spennandi að sjá myndina af hvíta jólatrénu

Jóla knús

Sigrún Jónsdóttir, 14.12.2008 kl. 00:49

4 Smámynd: Sigríður Svala Hjaltadóttir

já alltaf gaman að setja upp jólaljós, þau eru róandi og skapa léttara andrúmsloft. knús knús

Sigríður Svala Hjaltadóttir, 14.12.2008 kl. 16:33

5 Smámynd: Erna Sif Gunnarsdóttir

Ji ég vildi bara óska þess að ég gæti skreytt i ár en vonandi næstu jól hehehe,,,svo mikið jólabarn.Jólaljósinn eru æði

Jólakoss frá okkur hafðu það sem allra best

Erna Sif Gunnarsdóttir, 15.12.2008 kl. 13:35

6 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Fallega gert hjá þér Krúttína mín. Satt að segja gaf ég stóra tréð mitt í fyrra og skrautið líka því ég hélt ég þyrfti ekki að leggja eins mikla áherslu á það lengur þar sem synirnir virtust vera að taka yfir aðfangadagskvöld. En ég fékk  það aftur og nú er sá yngri, hinn verðandi lögfræðingurinn alveg spólandi, það verður að vera jólatré!! :) Svo ég sagði honum bara að gera svo vel að redda því, ég get skreytt það allt með einstaklega fallegum kolbrenndum smákökum

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 21.12.2008 kl. 14:07

7 Smámynd: Aprílrós

já ég gaf ljósaljós, svo er ég að gefa jólatré sem ég fann hjá mér sem ég er ekkert að nota, fer með það með mér uppá Akranes á eftir. Það er alltaf hægt að finna skraut til að skreyta jólatreð ef mar er með hugmyndir. Nóg er til af þeim stundum í mínum kolli.

Erna mín þú getur alveg örgglega skreytt jólatré að ári.

Aprílrós, 21.12.2008 kl. 16:20

8 Smámynd: Erna

Þú ert nú alveg frábær, það gefur manni mikið að geta glatt aðra, sjálf fer ég alltaf rétt fyrir jól með glaðning á tvo staði.

Ég get ekki kommentað á síðustu færsluna þína Krútta mín, það kemur engin athugasemdarlína. Er þetta bara svona hjá mér?

En samt fullt af knúsi til þín

Erna, 21.12.2008 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband