Ég er eitthvað svo týnd, veit ekkert hvað ég á að gera né í hvorn fótinn ég á að stíga . Er með svo mikinn kvíða fyrir morgundeginum og dögunum sem koma þar á eftir . Mest langar mig til að hætta vinna og fara í skóla, núna finst mér ég vera í svo mikillri þörf fyrir að fara læra, en læra hvað ? veit ekki einu sinni hvað mig langar að læra , jú langar að læra nudd en veit ekki hvort ég hafi líkama í það að vinna við það. Langar lika að læra rafeindavirkjun og eins með það veit ekki hvort ég hafi líkama í að vinna við það. Langar líka að fara á trukkanámskeið og vinnuvélanámskeið, finst svo gaman að glíma við stór tæki, hef fengið þessa bakteríu í mig í sveitinni í uppvextinum sennilega . Já komið slatti af námsefni að velja úr svosem en held að byrjunin sé að fara í skóla á grunnbraut og læra það sem unglingarnir eru að læra í dag
En margt er að skoða, spá og spekulegra í öllu þessu, ekki er nóg bara að ákveða að hætta vinna og skella sér í skóla, það þarf að hugsa út í hvernig ég ætla að fjármagna skólann, framfleyta heimilinu, syninum, hvar fæ ég laun , allt orðið svo dýrt og ekkert hægt að leyfa sér, ekki einu sinni að vera veik.
Stend bara á krossgötum
Flokkur: Bloggar | Fimmtudagur, 17. september 2009 | Facebook
Færsluflokkar
Tenglar
vinir minir
Mynda albúmið mitt
Börnin mín
Bloggvinir
- annaeinars
- gelgjan
- annabjo
- duddi-bondi
- baldurkr
- beggipopp
- birnamjoll
- heiddal
- gattin
- binna
- brylli
- skordalsbrynja
- dofri
- draumar
- emilkr
- strumpurinn
- umhetjuna
- loi
- fridrikomar
- fridaeyland
- eddabjo
- gurrihar
- gunnagusta
- mammzan
- landsveit
- gullvagninn
- heidathord
- kolgrimur
- hrabbabj
- astromix
- joninaottesen
- juliusvalsson
- katrinsnaeholm
- kari-hardarson
- kristin-djupa
- larusg
- lillagud
- bestalitla
- linka
- perlaoghvolparnir
- peturg
- rasan
- roslin
- undirborginni
- einfarinn
- amman
- sigro
- steinunnolina
- taraji
- melrakki
- ylfamist
- torabeta
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
www.keilir.net
:) kv Dóra
Dóra litla (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 00:10
Þú getur farið til námsráðgjafa og hann hjálpað þér að finna hvar þitt áhugasvið liggur. Var á svoleiðis um daginn sem var bara gaman. Ég fór reyndar af þvi ég er atvinnulaus en mjög áhugavert hvað kom út úr því :)
Kristín Jóhannesdóttir, 20.9.2009 kl. 10:17
Æ það er ekki gott að vera kvíðin. það er margt í boði að læra....... svæðanudd þarf ekki að vera líkamlega erfitt.
svo að lokum - þegar maður lokar einni hurð þá opnast önnur
Gangi þér vel
Sigrún Óskars, 20.9.2009 kl. 16:57
Takk stelpur, já ég ætla spjalla við námsráðgjafa.
Aprílrós, 21.9.2009 kl. 23:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.