Ólétt !

Fékk staðfest á dögunum að ég væri ólétt, fann engin einkenni um það, var hjá lækni útaf öðru og þá kom þetta í ljós. Hlakkaði til að láta háa dökkhærða mannin vita, Var ekki búin að láta hann vita þegar ég vaknaði, og var dauðfegin að þetta var bara draumur, myndi ekki nenna að standa í því í dag tæpra 46 vetra að vera ólétt, yrði það undur og stórmerki ef það yrði eftir 12 ár í kaskó. Smile

Fótboltaleiknum hjá syninum var frestað vegna veðurs, var ég ákaflega fegin því mér var farið að kvíða fyrir að leggja af stað því ég er enn á sömu dekkjunum og var einmitt í morgun að lesa blogg frá einum að það hafi orðið árekstur  snemma í morgun, og fólkið sem lendir í árekstri gæti ekki kennt neinum um nema sjálfum sér vegna þess að það kann ekki að keyra, þá á hann við að það keyrir ekki eftir aðstæðum, og enn á sumardekkjum komið fram á þennan tíma árs. Ég viðurkenni að ég skammaðist mín fyrir trassaskapinn í mér líka í ljósi þess að ég rann yfir á rauðu ljósi í hálku um daginn Angry og lofaði að breyta því en gerði ekki neitt svo Blush

Jæja ætla leggjast á fjórar fætur og klóra dúkinn á baðherberginu, nei  ekki að klóra vegna kláða GetLost, nota klór til að hreinsa dúkinn og leysa upp gamalt bón, skúra síðan og bóna.

Takið af ykkur skóna, ég er að bóna Grin Happy 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Líney

Þú náðir mér alveg núna,svitnaði augnablik fyrir þína hönd mátt ekki  bregða manni svona en  allavega   gangi þér vel með  baðgólfið ((samúð))

Líney, 15.11.2008 kl. 15:21

2 Smámynd: Aprílrós

Elsku kellingin mín ;) Gaman að slá á létta strengi ;) Gera gott úr því og njóta ;)

Knús og kreist til þín elskan ;)

Aprílrós, 15.11.2008 kl. 16:36

3 Smámynd: Líney

Ég var líka aðí

Líney, 15.11.2008 kl. 16:51

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Merkilegur draumur, hefurðu spáð í það? - Hafðu það gott mín kæra.-

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.11.2008 kl. 20:56

5 Smámynd: Aprílrós

já draumurinn táknar bara bjart framundan, nýjar breytingar og jákvæðar . Hvað er hægt að biðja um meira ?

Eigið ljúft kvöld það sem eftir er af því ;)

Aprílrós, 15.11.2008 kl. 22:54

6 Smámynd: Sigríður Svala Hjaltadóttir

skal gert ég hendi bara skónum  Gangi þér vel að bóna. já skrítin draumur en stendur fyrir gott.  knús knús til þín ljúfan

Sigríður Svala Hjaltadóttir, 17.11.2008 kl. 11:40

7 Smámynd: Aprílrós

Takk Sigríður mín. ;)

Aprílrós, 17.11.2008 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband